Til hvers ætlarðu að lesa það sem stendur hérna...







Friday, August 06, 2004
NÝTT BLOGG!!!!!!!!


Ég er kominn með nýtt blogg!!!!!

www.folk.is/gunsig


Posted at 01:29 am by gunsig
Make a comment

Wednesday, August 04, 2004
LOKSINS!!!

Jæja... þá er þetta drasl loksins farið að virka, bara allt í einu ánþess að ég hafi gert neitt!:)

En hvað um það...  Þetta sumar er búið að vera fáránlega fljótt að líða og skólinn fer bara að byrja aftur!  Ég er að vinna hjá UMF Neista í sumar og starfa þar sem framkvæmdarstjóri... Nice!!

Ég fór til Akureyrar um versló og þar var svosum ágætt... Papaballið á sunnudeginum var eitt það skemmtilegasta ball sem ég hef á ævinni farið á!  En ég lenti einnig í hremmingum!  Það var stolið tveimur súlum úr tjaldinu mínu og kveikt í þeim við hliðina á því.. AF HVERJU TVEIMUR??? Svo keyptum við strákarnir okkur stórt partýtjald og því var rústað.  Svo var ég að labba með Árna Páls og  við mættum manni sem ég bauð í box en komst síðan að því að þetta var Skúli Tyson... DEM!  Svo ég forðaði mér bara.  
   Þetta var allt svo mikið snilld!

En hvað um það ég mun sennilega blogga mikið á næstunni þar sem ég vinn við tölvuna meiri hluta dags, svo fylgist endilega með!

Bæ í bili!

Posted at 11:56 pm by gunsig
Make a comment

Monday, May 10, 2004
...2 próf eftir!

Jæja... þá fer að styttast í annan endann á þessu skólaári því ég á aðeins 2 próf eftir sem eru Íslenska403 og Stjörnufræði.  Svo flýg ég suður á fimmtudagskvöld en kem aftur til baka á föstudagskvöld.  Ég þarf að fara suður í einhverja sneiðmyndatöku og röngtentöku fyrir bakið á mér... jújú, það er alltaf e-ð að manni. 
Núna í augnablikinu sit ég í sófanum fyrir utan salinn á heimavistinni og situr mér á hægri hönd Sigurjón Þórsón og á þeirri vinstri hin fagra Björg frá Fáskrúðsfirði.
Það er svosem ekki mikið af frétta af mér nema kanski það að maður er búinn að fá vinnu í sumar.  Í sumar mun ég vera framkvæmdarstjóri Neista og er ég bara mjög spenntur fyrir því starfi. 
...jú svo má ég ekki gleyma því að ég er búinn á ná Þýsku 303.. LOKSINS.  Þetta var í annað skiptið sem ég sat þennan áfanga og nú er hann nú s á enda. 

Jæja ég nenni ekki að skrifa meira...

bless
supernagosc.jpg

Nýja stelpubandið sem kemur í stað Spice Girls:)

 

Posted at 10:49 pm by gunsig


Friday, April 30, 2004
Úrslit ráðin!

... nú verður maður útvarpsstjóri á næstu önn.  Gunnar Gunnarsson var kjörinn formaður, Ívar Pétur sem skemmtunarstjóri, Íris sem pésastjóri, Fanney sem ritari, Bergdís sem gjaldkeri, Katla Rut sem formaður lme og Rabbi sem formaður íme.  Og þá er það upp talið!

Jújú.. ég er svosum alveg sáttur með þessi úrslit þó ég hefði kanski viljað að þau færu á annan veg... en nóg um það.

Siggi Bessa var að kaupa sér nýja rakvél og virkar hún víst bara mjög fínt... sú gamla (ekki konan hans) var víst orðin frekar slöpp.  Siggi er því alsæll þessa dagana og er alltaf nýrakaður.

Þessi er helvíti góð!

wheeliedragkitya.jpg

Posted at 12:45 am by gunsig
Make a comment

Wednesday, April 28, 2004
NEWS!

Jæja... þá veit maður nokkurn vegin hvernig næsta önn mun ganga fyrir sig.. Haldið þið ekki að mín elskulega Katla hafi bara labbað til mín áðan og beðið mig um að vera með sér í stjórn lme ásamt henni og lísu leifs á næstu önn.   Ég samþykkti þetta og vonandi verður hún Katla bara kosin.  Hún er sem sagt að bjóða sig fram sem formaður lme.

Í þessum hóp sem er að bjóða sig fram eru,  Bergdís sem gjaldkeri, Sigfríð sem ritari, Íris sem pésastjóri, Ívar pétur sem skemmtanastjóri og Silja sem formaður og óska ég þeim góðs gengis í kosningunum sem fram fara á morgun.

En nóg um það... ég er að fara að læra undir munnlegt próf í þýsku 303 og er að drepast úr stressi en þetta fer vonandi allt vel..

Bless bless

Posted at 07:43 pm by gunsig
Make a comment

Tuesday, April 27, 2004
Jiiúúújiihhhhh.....!

Halló... í dag er þriðjudagur og það fer að styttast í þessi próf... núna er ég í ensku og sit því miður við hliðina á Urði og Árný því svo virðist vera að hr. Böðvar hafi ekki tekið frá sæti fyrir mig í þetta sinn. 
En jæja... ég var mjög ánægður þegar ég fór að skoða dagbókina mína áðan.. ég komst að því að ég er að fara í vikufrí frá og með föstudeginum því ég byrja ekki ó prófum fyrir en 7. maí og hefjast þau með þýskuprófi.

Jæja, nóg um þetta skóla bull...   Það var hringt í mig í gær og var mér boðin vinna upp í Kárahnjúkum í sumar... þeim vantar einhvern verkstjóra hjá Impregilo og var mér boðið það starf... Þetta er yfirverkstjóra starf og mun ég ráða yfir öðrum undirverkstjórum.
Auðvitað varð ég mjög hissa en tók samt starfinu... svo ég verð uppi á fjöllum í allt sumar að græða:)

Nóg um það...  
Í enskutíma ég sit að læra
í þokkalegu sæti
Urður er mig alveg að æra
hún hefur svo mikil læti


Þetta er Urður!    p.s. Urður mín.. þetta er allt í gríni!:)

DCP-060304 239.jpg

Posted at 05:36 pm by gunsig
Make a comment

Monday, April 26, 2004
Yeahh!!

Ég og Böðvar erum núna að gera ensku ritgerð úr bókinni "Brakfast at Tiffany´s".    Þetta gengur svona ágætlega..!:(

Mér bíður við þeirri tilhugsun að það sé rétt rúmlega vika í að lokaprófin byrji... samt byrja ég ekki fyrir en 7. maí.!

Rétt í þessu vorum við að ákveða að fresta ritgerðinni og klára hana á morgun.. því hvorugur okkar er búinn með bókina.    

æji bless!

Posted at 01:44 am by gunsig
Make a comment

Tuesday, April 20, 2004
Vísa

Ég ákvað að skella þessari inn á...

Eitt sinn sat hú Urður heima
og var þar bara að hangsa
skyndilega hún fór að breyma
og kíkti heimt til Bangsa

Posted at 12:08 am by gunsig
Comments (2)

Wednesday, March 31, 2004
Hestur

Jájájájájájá..... best að skrifa e-ð meðan ég er í efnafræðitíma!  
Ný styttist óðum í páskafrí og spenningurinn er mikill... eða allavega hjá mér!  Eins og allir vita, þá byrjar páskafríið núna á föstudaginn, ætli maður skreppi ekki suður um helgina og stoppi í 2-3 daga, jeii... ég hef nefnilega ekki komið í bæinn í eitt ár eða svo.  Ætli það sé ekki allt breytt... komnir fljúgandi bílar, risablokkir, Elli í Mýnesi komin með risavillu og Ingibjörg sólrún komin með tattú á mjöðmina... djöfull hlakkar mér til að sjá þetta allt saman. 
En jæja best að fara að hætta þessu áður en Berlínarmúrinn fellur í annað sinn!
Bless

P.s.  kann einhver að búa til link á þessa fjandans síðu... t.d. þar sem ég get skrifað um vini mína og svolleiðis??

Veistu hvað það kostar í sund??

 Kíkið endilega inn á síðuna hjá honum Guðna Baldri... hann var að byrja með blogg! 
http://www.folk.is/kinghenry

Posted at 12:43 pm by gunsig
Make a comment

Tuesday, March 30, 2004
Góðan daginn!

Ég er í þýskutíma hjá Ronald núna og er að reyna að gera eitthvað verkefni sem ég skil ekkert í...:(   Ég bókstaflega hata þýsku!

Jæja.. maður er enn hálf tussulegur eftir helgina því það var skellt sér í menningarferð á Akureyri.  Ég fór á bíl ársins og reyndist hann mjög vel eða drap allavega mjög sjaldan á sér.  Við lögðum á stað klukkan 5 á föstudag og vorum komin um háld þrjú leytið á sunnudag!
Það gerðist nú margt skemmtilegt í þessari ferð eins og við var að búast.  Það sem mér fannst nú skara mest framúr var það að Jói skyldi pissa í rúmið sitt.  Hann ruglaðist aðeins á klósettinu og rúminu sínu og lét bununa bara gossa á dínuna sína!   Bjössi Ben er kominn með nýtt nafn eða blái rostungurinn eins og lögreglan á Húsavík vill kalla hann. 

Shit hvað ég er einhverfur... það á enginn eftir að lesa þetta, og ég er núna búinn að eyða hellings tíma í að skrifa enhverja þvælu sem enginn á eftir að lesa... ARRGGG hvað er að mér.. af hverju hætti ég ekki.....     peysa.... fallhlíf.... kaðall....     ok ég er hættur!

Þetta er ný ísvél sem Við Voginn á Djúpavogi var að fjárfesta í!
 

0165.jpg


Posted at 12:16 pm by gunsig
Comments (1)

Next Page



   

<< September 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30


Þorkell frændi
Kristján Geir
Hildur Spildur
John Kolbeinn
Urður
Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
Sjarmörinn
Böddi stælti




If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


rss feed

blogdrive