Entry: Jiiúúújiihhhhh.....! Tuesday, April 27, 2004



Halló... í dag er þriðjudagur og það fer að styttast í þessi próf... núna er ég í ensku og sit því miður við hliðina á Urði og Árný því svo virðist vera að hr. Böðvar hafi ekki tekið frá sæti fyrir mig í þetta sinn. 
En jæja... ég var mjög ánægður þegar ég fór að skoða dagbókina mína áðan.. ég komst að því að ég er að fara í vikufrí frá og með föstudeginum því ég byrja ekki ó prófum fyrir en 7. maí og hefjast þau með þýskuprófi.


Jæja, nóg um þetta skóla bull...   Það var hringt í mig í gær og var mér boðin vinna upp í Kárahnjúkum í sumar... þeim vantar einhvern verkstjóra hjá Impregilo og var mér boðið það starf... Þetta er yfirverkstjóra starf og mun ég ráða yfir öðrum undirverkstjórum.
Auðvitað varð ég mjög hissa en tók samt starfinu... svo ég verð uppi á fjöllum í allt sumar að græða:)

Nóg um það...  
Í enskutíma ég sit að læra
í þokkalegu sæti
Urður er mig alveg að æra
hún hefur svo mikil læti


Þetta er Urður!    p.s. Urður mín.. þetta er allt í gríni!:)

DCP-060304 239.jpg

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments