Entry: NEWS! Wednesday, April 28, 2004



Jæja... þá veit maður nokkurn vegin hvernig næsta önn mun ganga fyrir sig.. Haldið þið ekki að mín elskulega Katla hafi bara labbað til mín áðan og beðið mig um að vera með sér í stjórn lme ásamt henni og lísu leifs á næstu önn.   Ég samþykkti þetta og vonandi verður hún Katla bara kosin.  Hún er sem sagt að bjóða sig fram sem formaður lme.


Í þessum hóp sem er að bjóða sig fram eru,  Bergdís sem gjaldkeri, Sigfríð sem ritari, Íris sem pésastjóri, Ívar pétur sem skemmtanastjóri og Silja sem formaður og óska ég þeim góðs gengis í kosningunum sem fram fara á morgun.

En nóg um það... ég er að fara að læra undir munnlegt próf í þýsku 303 og er að drepast úr stressi en þetta fer vonandi allt vel..

Bless bless

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments