|
En hvað um það... Þetta sumar er búið að vera fáránlega fljótt að líða og skólinn fer bara að byrja aftur! Ég er að vinna hjá UMF Neista í sumar og starfa þar sem framkvæmdarstjóri... Nice!! Ég fór til Akureyrar um versló og þar var svosum ágætt... Papaballið á sunnudeginum var eitt það skemmtilegasta ball sem ég hef á ævinni farið á! En ég lenti einnig í hremmingum! Það var stolið tveimur súlum úr tjaldinu mínu og kveikt í þeim við hliðina á því.. AF HVERJU TVEIMUR??? Svo keyptum við strákarnir okkur stórt partýtjald og því var rústað. Svo var ég að labba með Árna Páls og við mættum manni sem ég bauð í box en komst síðan að því að þetta var Skúli Tyson... DEM! Svo ég forðaði mér bara. Þetta var allt svo mikið snilld!
En hvað um það ég mun sennilega blogga mikið á næstunni þar sem ég vinn við tölvuna meiri hluta dags, svo fylgist endilega með! Bæ í bili! |
| Leave a Comment: |